Ég er voðalega hamingjusöm sveitastelpa frá Hornafirði. Ég bý með fallega kærastanum mínum honum Björgvini og er ferðamálafræðingur... Mottóið mitt í lífinu er að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi...
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir heiti ég og er sveitastelpa að austan, nánar tiltekið frá Hornafirði. Ég hef verið búsett í Breiðholtinu með honum Björgvini mínum síðustu fimm árin (síðan 2003). Ég á eftir eitt ár til BS prófs í ferðamálafræði í Háskóla Íslands. Ég á yndislegustu fjölskyldur í heimi og er því ótrúlega rík manneskja.