(Icelandic) Fyrirlestur Jóns Gunnars Borgþórssonar á íslensku sem haldinn var um samfélagsmiðilinn LinkedIn þann 5.3.2015. hjá VR/Starf. Farið var lauslega yfir samfélagsmiðla-byltinguna sem átt hefur sér stað undanfarið og hvernig LinkedIn er notaður, hvernig megi stilla upp "profile" á miðlinum, hvað beri að hafa í huga og hvað varast. Einnig var farið inn á miðilinn sjálfan og sýnt hvernig væri hægt að leita að starfi o.fl. sem ekki kemur fyrir í slæðusýningunni sjálfri.
2. Efni
• Bylting samfélagsmiðlanna
• Hvað er LinkedIn?
• Fyrir hverja?
• Hvað er í boði?
• Hvaða upplýsingar og hvernig?
• Hvernig nýtist LinkedIn…?
• …til samskipta
• …til öflunar viðskipta
• …við atvinnuleit
• Ekki skoðað viðaskiptalíkanið að þessu sinni
• Yfirferð, en ekki djúp greining á miðlinum
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 2
4. Nokkur atriði úr myndskeiðinu
• Yfir 50% af rafrænum viðskiptum eru framkvæmd með spjaldtölvum og símum
• Notendur Facebook eru yfir 1,4 milljarðar
• Meira en 50% af íbúum heimsins eru undir 30 ára aldri
• 53% þeirra sem fæddir eru milli 1980 og 2000 sögðust frekar vilja missa þefskynið en tæknina
(Badgeville, 2011)
• Það eiga fleiri handtölvu/snjallsíma en tannbursta
• Spáð er að árið 2018 verði 2/3 notkunar á slík tæki skoðun myndskeiða
• 2 nýir notendur bætast við á LinkedIn á hverri sekúndu
• 80% fyrirtækja (í USA) nota samfélagsmiðla við starfsráðningar – 95% þeirra nota LinkedIn
• Ömmur og afar er sá notendahópur sem vex mest á Twitter
• 90% kaupenda treysta best ráðleggingum/reynslu jafningja
• Manneskjan heldur athygli að meðaltali í 7 sek. – gullfiskur í 8 sek.
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 4
5. Hvað er LinkedIn
• Þjónustu og samfélags-/tengslanetsmiðill
• Stofnaður 2003 á netinu fyrir skipulagsheildir (fyrirtæki, félög,
stofnanir, fagfólk o.s.frv.)
• Meðlimir/þátttakendur geta fyllt út yfirlitssíður (Profiles) fyrir sjálfa
sig og tengst öðrum í því augnamiði að koma á faglegum samböndum
• Hægt að nálgast frá yfir 200 löndum og á 20 mismunandi
tungumálum
• Meðlimir í árslok 2014 tæplega 350 milljónir, þ.a. í USA 107 milljónir
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 5
6. Hvað er LinkedIn
• Opnar möguleika fyrir atvinnurekendur að auglýsa störf og leita að
líklegum aðilum í störf.
• Á svipaðan hátt geta atvinnuleitendur leitað að þeim stofnunum eða
fyrirtækjum sem eru að ráða fólk, aflað upplýsinga um þau og
starfsmenn þeirra í gegnum tengslanetið sitt.
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 6
7. Meira um LinkedIn
Fjöldi meðlima LinkedIn (2009 – 2014) í milljónum (www.statista.com)
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 7
8. Meira um LinkedIn
Einstakar („Unique“) heimsóknir á hverjum ársfjórðungi (www.statista.com)
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 8
9. Að vera eða vera ekki á LinkedIn?
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 9
LinkedIn er talið áhugaverðast til markaðssetningar á stofnanamarkaði (B2B)
en Facebook fyrir sölu til almennings (B2C) – aðrir miðlar auka sinn hlut.
10. Ísland – vaxandi notkun
• Ríflega 100 þús. fagaðilar - Tæplega 500 íslensk fyrirtæki
• Fyrir útflytjendur:
• Stór og flokkaður markaður
Stofnanamarkaður – Stjórnendur - Fagaðilar ákveðinna greina
• Auglýsingar
• Tengsl – möguleg stækkun dreifikerfis og/eða bein sala
• Fyrir fagfólk – áhugasviðs-/faghópar
• Mannauðstengd starfsemi – leit að starfi eða starfsmanni
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 10
11. LinkedIn skráningin þín - grunnur
• Lifandi ferilskrá – alltaf hægt að vísa í hana
• Skráning með mynd – 7-11 sinnum oftar skoðað
• Sterka fyrirsögn sem skapar forvitni
• Samantekt – grípandi – í stuttu máli
• Skrá sig í áhugasviðs-/starfssviðshópa
• Varast „suðorð“ („Buzzwords“) – ofnotuð orð
• Fá umsagnir (Recommendations) – helst frá yfirmönnum
• Haltu skráningunni við og vertu virk(-ur)
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 11
12. LinkedIn skráningin þín - viðbótaratriði
• Nafnið – fullt nafn – íslenskir stafir eða ekki? Titlar eru í lagi s.s. Msc., MBA o.s.frv. – að setja meira getur komið þér í vandræði.
• Láta myndina endurspegla prófílinn að einhverju leyti, án þess að yfirkeyra það. Mynd af þér!
• Fyrirsögn – helst „To the point“ og þannig að hún skapi forvitni til að vita meira – mín er ekki góð!
• Samantekt – stutta um starfsreynslu, sjálfboðaliðastarf – hvað þú ert að gera núna og hverjar væntingar þínar eru – endurspegli þig. Þar má
líka setja tengla á aðrar upplýsingar um þig (vefsíða, -ur, blogg o.s.frv.) Hér er allt í lagi að segja „Ég“ eða „I“ af og til – reyna að halda þessu
persónulegu án þess að detta í væmni eða of persónuleg málefni eins og ásta- og fjölskyldumál eða annað persónulegt.
• Öfugt við ferilskrá er hægt nánast að segja frá öllum ferlinum hér og með meiri upplýsingum sé það æskilegt – ekki fylla samt inn í með
blaðri!
• Skráning í hópa – taka þátt í umræðum og tengjast öðrum á þínu fagsviði – Líka til að tengjast öðrum með svipuð áhugasvið – mjög góð leið
til að stækka tengslanetið og sýna virkni á fagsviðinu. Þú getur líka haft samband beint við meðlimi hópsins – annars geturðu einungis sent á
þína tengla eða þarft jafnvel að kaupa þig inn í póstkerfi LinkedIn (InMail)
• Sjálfboðaliðastörf (Volunteering) – Svo virðist sem sjálfboðaliðastörf séu hátt skrifuð (erlendis a.m.k.) svo ekki sleppa því ef þú hefur
einhverju við að bæta þar.
• Forðast suðorð eins og passionate, motivated, strategic, driven, track record, creative, extensive experience, responsible, dynamic and
analytical
• Fáðu umsagnir og gefðu öðrum umsagnir til að hjálpa þeim líka – er sterkt – munum að umsagnir nákominna, vina og kunningja vigta oft
miklu meira en t.d. auglýsingar.
• „Endorsements“ – „Skills“ – o.s.frv.
• Haltu skráningunni þinni lifandi og uppfærðu hana reglulega.
• Varastu stafsetningarvillur og lélega ensku – fáðu einhvern/einhverja til að lesa yfir fyrir þig
• Ekki ljúga – slæmt á ferilskrá – ennþá verra á LinkedIn þar sem allir geta séð ef þú „strekkir“ á sannleikanum
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 12
13. Leit að viðskiptavinum/birgjum
• Fyrst og fremst í gegnum leit
• Hópar geta hjálpað til
• Útsending tölvupósta
• Almennar reglur um velsæmi gilda
• Ekkert bull
• (Hér nefndi ég nokkur dæmi frá mér sjálfum)
• LinkedIn í efsta sæti fyrir B2B
• Vantar þekkingu á miðlinum
• 6 aðal samfélagsmiðlarnir m.t.t. skilvirkni á
B2B mörkuðum eru taldir vera LinkedIn (91%), Twitter (85%), Facebook (81%), og
YouTube (73%)
• Helst kallað eftir meiru gagnsæi og þekkingu á hvernig megi nýta sér miðilinn (í könnun
sagðist 77% markaðsfólks ætla að nýta LinkedIn meira til markaðssetningar).
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 13
14. Vinnuleit
• Íslensk fyrirtæki farin að auglýsa
• Erlendir „hausaveiðarar“ eru margir og virkir
• Auglýst störf
• Fylgjast með áhugaverðum fyrirtækjum /starfsmönnum þeirra
• Hefur áhrif á fyrirsögnina þína (120 stafir max)
• Í reynslukaflanum – áhersla á rétta þætti
• Umsagnir mikilvægar – „Endorsements“ ekki eins
• Almenn virkni getur haft áhrif líka
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 14
15. Aðeins til viðbótar
• Hversu eftirsóknarverður ertu sem starfskraftur – innanlands –
erlendis – hefur áhrif.
• Íslensk fyrirtæki s.s. Marel, Össur, CCP o.fl.
• Tengjast starfsmannastjórum/-þróunarstjórum fyrirtækja og ef þú
þekkir aðra innan fyrirtækjanna – enn betra
• Fara fram á að tengjast starfsráðgjöfum hjá helstu ráðningarstofunum
• Skoða „Jobs“ á hópasíðunum
-> Fór í gegnum leit að störfum á LinkedIn
-> Fór í gegnum leit að „recruiters“ og/eða starfsfólki fyrirtækja
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 15
16. Almennt um hvað má og hvað ekki
https://www.youtube.com/watch?v=hqezbib5qpQ
VR - Starf / 5.3.20145 /Jón Gunnar Borgþórsson 16
17. LinkedIn
Samfélagsmiðill á fullri ferð
VR – Starf – 5. mars 2015
Jón Gunnar Borgþórsson, MSc., CMC
Jón Gunnar Borgþórsson, MSc., CMC
Íslensk vefsíða: www.mid.is
Erlend vefsíða: http://jon-gunnar-borgthorsson.branded.me
Twitter: @jonborg
Facebook: Jón-Gunnar-Borgþórsson
Editor's Notes
Áhersla á þróun og möguleika notenda til að hagnýta sér miðilinn – ekki farið í viðskiptalíkanið í þessari umfjöllun.
Skv. www.statista.com
þ.e. hver og einn talinn einungis einu sinni – um 90 milljónir á 4ja ársfjórðungi í fyrra