2. Sauðkindin Landnámsmennirnir komu með kindurnar með sér Kindurnar á Íslandi voru margfalt fleiri en íslendingar eða 890.000 í kringum árið 1980, en hefur farið fækkandi því nú eru þær um 480.000
3. Sauðkindin Kindur éta gras á sumrin en hey á veturna sem bóndinn hefur heyjað um sumarið KK kind heitir hrútur, kvk kind heitir ær og afkvæmið heitir lamb kk lamb er hrútur og kvk lamb er gimbur
4. Sauðkindin Eins vetra gömul lömb kallast gemlingar eða gemsar Þegar gimbrar eru orðnar gemlingar geta þær átt lamb um vorið
9. Afurðir Sauðkidin er nýtt í mjög margt Kjötið er borðað Ullin notuð í flíkur og prjónaskap Horn og bein voru notuð sem leikföng Innyfli í slátur eða matargerð
10. Afurðir Í gamladaga voru kindur mjólkaðar eða til 1950 Mjólkin var drukkin bara sí svona og það var gerður ýmiskonar mjólkurmatur
11. Hornin Kindur sem eru með horn eru hyrndar Kindur sem ekki eru með horn eru kollóttar
12. Rúningur Þegar vorar og fer að verða hlítt þá verður kindunum frekar heitt í allri þessari ull svo maður klippir hana af en það kallast rúningur Við segjum að eftir rúning er ær komin í sumarkjólinn sinn
14. Fjárhúsin Heyið er sett í jötu og kindurnar éta það þaðan Stundum eru lambhrútar settir í stíur og eins gimbrarnar Það eru vatnsfötur eða eitthvað annað sem kindurnar drekka úr í fjárhúsunum
15. Litir á íslensku kindinni Allmennir sauðalitir eru mórauður, svartur, hvítur og blandaður Náttúrulega er hægt að hafa marga liti í ullinni og sumar eru hálf röndóttar eins og þessi
19. Sauðkindin Kindur eru jórturdýr Þegar kindurnar eru búnar að éta matinn æla þær matnum eftir að hafa tugið hann lítilega Þegar þær jórtra þá tyggja þær matinn betur
20. Sauðburður Ærnar bera um vorið Flestar eru tvílembur sem þýðir að flestar eiga tvö lömb en stundum eru þau fleiri Sumar leitast eftir því að bera inni en sumar vilja bera undir berum himni
21. Sauðburður Stundum þegar kindur eru óþolinmóðar og nenna ekki að bíða eftir sínum lömbum þá reyna þær að stela öðrum lömbum Þessi hérna hefur orðið fyrir ráni
22. Sauðburður Ef ein kind er með 3 lömb en hefur kannski stolið einu þá mjólkar hún ekki nóg handa þeim öllum þá gefur maður þeim pela svo öll lömbin séu södd
23. Sauðburður Lömbin eru oftast sett inn í stíu og hleipt út í girðingu eftir nokkra daga Lömbin eru mörkuð u.þ.b. Viku eftir að þau fæðast
24. Fjárhús-Fjall Kindunum er hleipt upp á fjall eftir sauðburð og þá eru öll lömbin merkt svo bóndinn geti þekkt kindurnar og lömbin sín aftur Þegar kindurnar eru uppi á fjalli eru þær á svæði sem kallað er afréttur
25. Réttir Á haustin fara bændur að smala saman kindunum en það kallast göngur Kindunum er smalað í réttir sem líta svona út Miðjan kallast almenningur og kindurnar eru settar þar og dreggnar svo í dilka
26. Réttir Réttir eru til þess að svortera allt féð sem kom af afréttum Hver bóndi dregur sitt mark í sinn dilk og fer svo með féð heim á leið
27. Slátrun Bóndinn getur ekki haldið öllum lömbunum sem komu um vorið svo þeim er slátrað að hausti Oftast eru kindur eða lömb öllu heldur send í sláturhús
28. Forystufé Eitt af því sem gerir íslenska sauðfjárstofninn sérstakan er að í honum finnst svokallað forystufé sem þekkist hvergi annars staðar í heiminum Stundum er forystuféð stærra og fallegra
29. Forystufé Góður forystusauður finnur bestu leiðina og skilar fénu í hús heilu og höldnu Einnig var forystufé talið veðurglöggt og var það oft trekt til að fara út úr húsi ef von var á vondu veðri á veturinn
30. Hjátrú og Þjóðtrú Ef jörð er hvít um fengitíman verða flest lömb hvít, ef jörð er flekkótt verða flest lömbin mislit Ef maður étur eyrnamark af kindahöfði verður maður þjófur Það á alltaf að brjóta málbeinið í kindasviðum , annars fæðist mállaust barn á heimilinu Það boðar snjókomu og hríð að dreyma hvítt fé Ef maður brýtur fótlegg úr kind fótbrotnar sauðkind sem maður á