Fyrirlestur haldinn á Töff Stöff! Veflausnadegi TM Software 18. október 2012.
http://www.tmsoftware.is/tm-software/vidburdir/vidburdur/item68106/Toff-Stoff--Veflausnadagur-TM-Software/
Umsjónarmenn vefsvæða þurfa í sífellu að huga að textagerð fyrir vefsvæði sín og mikil vakning hefur orðið á því undanfarið hversu miklu máli gott efni á vefsíðum skiptir. En það getur verið erfitt að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn þegar kemur að því að skrifa óskáldaðan texta á dæmigerðar vefsíður. Rúnar Helgi Vignisson, lektor í ritlist við Háskóla Íslands ætlar að gefa okkur góðar hugmyndir varðandi sköpunarferlið og vinnulag við að finna orðin sem hitta í mark.